...en blogga þó!

Ég eiginlega veit ekki hvar ég á að byrja. Það hefur nú ekki það margt á daga mína drifið síðan síðast. Dagarnir einkennast yfirleitt bara af vinnu og æfingum...og svo gerir maður líka að sjálfsögðu eitthvað annað á milli.
Nú eru jólin alveg að ganga í garð. Það er alveg ótrúlegt hvað tíminn flýgur áfram. En það er bara svoleiðis. Ég var eiginlega að komast í jólaskap núna fyrst í nótt. Starfsfólkinu á næturvaktinni fannst það ekki ásættanlegt að ég væri ekki komin í jólaskap svo að það var sett jólamynd í tækið, sem að við horfðum nú reyndar ekki mikið á. Eftir það létum við okkur bara jólalög nægja og mandarínur. Ég get alveg sagt að þetta svínvirkaði. Eftir þessa nótt er ég komin í jólaskap. Þær voru rosalega ánægðar með það hérna...Enda eiginlega ekki annað hægt en að fara í jólaskap hérna, það er allt svo skreytt, seríur, jólaskraut og meira að segja er lítið piparkökuhús sem að er hérna á einu borðinu. Þetta er allt saman voða fínt. Ég vona að þið séuð líka komin í jólaskap. Samt sem áður sakna ég þess tíma þegar ég taldi niður í jólinn nánast með hverri mínútunni og var með fiðring í maganum. En þetta tilheyrir nú oftast bara litlu börnunum, því miður því þetta er svo góð tilfinning. Maður fær þessa tilfinningu bara við aðra hluti í dag

Ég held að ég hafi nú ekki mikið annað að segja í bili...ég skal reyna að vera duglegri að halda mér við efnið á þessari síðu.

Ég ætla ekki að óska ykkur gleðilegra jóla í þessu bloggi...reyni að skrifa það á aðfangadag....
Þangað til næst...
-B